[15:06]
Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Valdimar Indriðason, fyrrverandi framkvæmdastjóri og alþingismaður, andaðist mánudaginn 9. janúar á heimili sínu á Akranesi. Hann var á sjötugasta aldursári.
Valdimar Indriðason var fæddur á Akranesi 9. september 1925. Foreldrar hans voru hjónin Indriði vélstjóri Jónsson í Norðurkoti á Akranesi Helgasonar og Vilborg Þjóðbjarnardóttir bónda í Kjalardal í Skilmannahreppi Björnssonar. Valdimar Indriðason lauk gagnfræðaprófi í Flensborg 1942, sveinsprófi í vélvirkjun við Iðnskóla Akraness 1946 og fullnaðarprófi frá Vélskólanum í Reykjavík og rafmagnsdeild hans 1949. Árin 1949--1956 var hann vélstjóri á togurum Bæjarútgerðar Akraness. Hann var verksmiðjustjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness 1956--1960 og framkvæmdastjóri hennar 1960--1991.
Valdimar Indriðason var í bæjarstjórn Akraness 1962--1986, hafði áður verið varabæjarfulltrúi eitt kjörtímabil. Hann var í bæjarráði 1970--1974 og 1978--1983 og forseti bæjarstjórnar 1977--1984. Hann átti sæti í mörgum stjórnum, ráðum og nefndum á vegum bæjarins, var meðal annars í stjórn Menningarsjóðs Akraness, í fræðsluráði og í skólanefnd Iðnskólans á Akranesi. Hann var í stjórn Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi nokkur ár, í stjórn Grundartangahafnar og var formaður stjórnar verkamannabústaða frá 1978. Í stjórn hlutafélagsins Skallagríms átti hann lengi sæti, var stjórnarformaður 1977--1978, 1984--1990 og frá 1993 til æviloka. Í stjórn Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda var hann 1968--1983, í stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna frá 1970 og formaður Félags íslenskra botnvörpuskipaeigenda 1971--1976. Hann var í stjórn Sögufélags Borgarfjarðar frá stofnun þess 1963 og varð stjórnarformaður 1985. Frá 1987 var hann í ritnefnd til útgáfu á Sögu Akraness.
Valdimar Indriðason var nokkrum sinnum í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn við alþingiskosningar í Vesturlandskjördæmi. Hann var alþingismaður 1983--1987, en varaþingmaður kjörtímabilin á undan og eftir, tók þá sæti á þingi á árunum 1980, 1988--1990, sat á níu þingum alls.
Valdimar Indriðason ól allan aldur sinn á Akranesi og var margfróður um sögu byggðarlagsins. Hann var á áttunda ári þegar faðir hans fórst í sjó. Hann varð vélstjóri eins og faðirinn og stundaði sjó nokkur ár, fór síðan til starfa í landi. Þar stjórnaði hann alla starfsævi sína umsvifamiklum og vaxandi atvinnurekstri við fiskvinnslu og ýmislegt henni tengt. Áhugasvið hans var rúmt og hann kom víða við í félagsstörfum og menningarmálum eins og fram kom í starfsferli hans sem rakinn hefur verið og er þó ekki nærri allt tínt þar til. Hann var um sextugt þegar hann sat á Alþingi. Hingað kom hann ríkur að reynslu og þekkingu á atvinnumálum og öðrum þjóðfélagsmálum og naut Alþingi þess í störfum hans í mörgum þingnefndum. Hann var félagslyndur og laðaði menn að sér til góðrar samvinnu með framkomu sinni. Alþingi naut ekki góðra starfa hans til lengdar, en heima á Akranesi vann hann mikið og heilladrjúgt ævistarf.
Ég vil biðja hv. alþingismenn að minnast Valdimars Indriðasonar með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]