Köfun

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 13:43:00 (3536)


[13:43]
     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Í 1. gr. frv. er talað um atvinnuköfun í ám og vötnum og síðar er einnig talað um áhugaköfun. Mig langar að spyrja hæstv. samgrh. að því hvort einhverjar takmarkanir séu á því hvar megi kafa eða hvort það sé öllum frjálst að stunda hvar sem er köfun þá sem þetta frv. fjallar um?