[14:49]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég dreg ekki úr því sem hv. þm. sagði um hættu þess að stórgripir gengju lausir á helstu umferðaræðum landsins. Ég held að til allrar hamingju sé það nú svo að lausaganga stórgripa sé bönnuð upp í Hvalfjörð, til Þingvalla, yfir Hellisheiði og Reykjanesskaga eftir því sem ég veit best.