Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 15:49:51 (3573)


[15:49]
     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Samráðið við Alþingi felst í þessari tillögu til vegáætlunar sem lögð er fram á Alþingi til umfjöllunar. Samráðið felst í umfjölluninni sem fer fram í nefndinni og fer fram í þingmannahópnum. Framkvæmdin er ekki ákveðin af hálfu Alþingi fyrr en samþykki þingsins hefur fengist. Þeir sem halda öðru fram eru að ómerkja sig sem þingmenn og ómerkja Alþingi. Þeir eru að draga úr mikilvægi þeirrar umfjöllunar sem hér fer fram og þeirrar ákvörðunar sem hér er tekin.