[15:51]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er ljúft að svara þeirri fyrirspurn sem lýtur að ferjubryggju við Ísafjarðardjúp. Það er rétt að framlög til hennar hafa verið veitt samkvæmt fjárlögum í tvö ár. Framlagi fyrra árið var samkvæmt tillögu allra þingmanna Vestfirðinga varið til annarrar hafnar þar fyrir vestan og gerði ég ekki athugasemd við það.
Um málið að öðru leyti er það að segja að það er eðlilegt að þetta mál kom fyrir samgn. Þessi mál og tillagan í heild sinni verður lögð fyrir í þingmannahópi Vestfirðinga og þá verða þau mál rædd eins og önnur hvernig standa skuli að samgöngum í Ísafjarðardjúpi og hefur hv. þm. þar auðvitað fullan rétt og aðstöðu til að koma við sínum rökum og sínum sjónarmiðum.
Um hitt atriðið vil ég segja að það er alveg laukrétt hjá hv. þm. að það er verið að taka upp nokkurn annan hátt nú í sambandi við fjáröflun til vegagerðar. Ég veit ekki hvort ég á að byrja á því að minna á að í fjáraukalögum var gert ráð fyrir 350 millj. kr. sérstaklega til Vesrfjarðakjördæmis. Það er til viðbótar því sem kemur með hinni sérstöku fjáröflun samkvæmt mannfjölda fyrir vestan. Það er auðvitað algjörlega út í hött að taka ekkert tillit til þess þar sem inni í þessari fjárhæð, 350 millj. kr., er ekki aðeins hinn almenni hluti til jarðgangagerðar heldur líka hluti kjördæmisins, um 20% sem eru 70 millj. kr. Það er því engin ástæða fyrir þingmenn Vestfirðinga að gera lítið úr því. Enda dettur mér ekki í hug að hv. þm. muni gera það heldur viðurkenna að vel sé staðið að málefnum Vestfirðinga í þeirri vegáætlun sem hér er lögð fyrir.
Ég vil í annan stað segja að það er algjörlega nýtt fyrir mér ef verið er að reyna að halda því fram varðandi síðustu ríkisstjórn t.d. að Sjálfstfl. hafi verið í sérstökum trúnaði hjá þeirri ríkisstjórn í vegamálum.