Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 17:47:12 (3617)


[17:47]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hlýt að biðjast afsökunar á því hafi ég vænt nefndina um að hún væri að reyna að tefja fyrir þessu máli. ( StG: Þú sagðir það.) Þá hlýt ég að biðjast afsökunar á því. Ég taldi mig ekki hafa sagt það en það sem ég á hinn bóginn sagði var að ég tryði því ekki að menn mundu standa á móti því að þessi þáltill. yrði afgreidd nú á þinginu.
    Um hitt atriðið sem spurt var þá er mér ljúft að svara því að það er gert ráð fyrir að um hina sérstöku fjáröflun verði höfðatala lögð til grundvallar.