[17:56]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er ekki rétt hjá hv. þm. og skiptir ekki máli hversu oft hann endurtekur það hér eða í Tímanum þar sem hann er ritstjóri. Það er ekki samkomulag um gömlu regluna á Alþingi. Þess vegna er ný regla tekin upp. Ég held að þetta sé ekkert flóknara en þetta, þetta skilja nú allir utan þings en það má vera að sumir í þinginu skilji þetta ekki. Það er auðvitað ekki breytt um vinnubrögð nema menn vilji breyta. Ef enginn vill breyta um vinnubrögð þá er það bara gamli Framsfl.
Ég vil líka segja við hv. þm. að það er svolítið skrýtin niðurstaða ef við tökum sérstaklega Vestfirði þegar það liggur fyrir að sérstök aukafjárveiting var til Vestfjarða upp á 350 millj. kr. til jarðganganna vegna þeirra óhappa sem þar voru að vísu en þetta eru nýjar fjárveitingar þangað vestur sem ekki hafði áður verið gert ráð fyrir. Og hvernig er þá hægt að segja í sama orðinu að verið sé að níðast á Vestfirðingum? Hvers konar málflutningur er þetta? Og ég vil líka segja ef við erum að tala um Austurland og ef við erum að tala almennt um einstök kjördæmi þá er það svo að verulegt fjármagn af sérstöku verkefnafé er veitt til einstakra kjördæma undir sérstökum kringumstæðum þegar menn telja svo eitthvað sérstaklega brýnt. Nú teljum við í þessari ríkisstjórn sérlega brýnt að flýta því að hringvegurinn sé lagður. Er það þá svo, hv. þm., að það skipti máli hvað peningarnir heita í vegáætlun ef þeir fara austur? Skiptir það þá máli? Fjöllin eru komin undir stórverkefni. Við viljum beita okkur fyrir því að þar sé hægt að vinna áfram. Það var gagnstætt því sem síðasta ríkisstjórn vildi og hv. þm. vildi meðan sú stjórn var við völd.