Kísilgúrverksmiðja við Mývatn

81. fundur
Þriðjudaginn 31. janúar 1995, kl. 14:34:53 (3672)


[14:34]
     Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér þykir í raun og veru mjög vænt um það að þingmenn skuli almennt ekki vera í neinum vandræðum með að viðurkenna þá stefnubreytingu í þessum málaflokki í Norðurl. e. sem núv. samgrh. hefur staðið að. Það er mjög mikilsvert að menn meti þetta að verðleikum og ég er mjög þakklátur fyrir það.