[14:37]
Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég skil áhyggjur hæstv. forseta af því að umræðan sé að fara út um víðan völl og vil gera mitt til þess að koma henni aftur inn á réttan grundvöll. Hér eru til umræðu málefni sem snerta
atvinnumál í Mývatnssveit og ég held að það sé rétt að láta það hér standa, að samgöngumálin hafa verulega mikil áhrif á þróun atvinnumála í Mývatnssveit og sú breyting sem orðið hefur á áherslum í þeim efnum er þess vegna Mývatnssveit og atvinnuuppbyggingunni þar mjög hagstæð og það er ástæðulaust að hafa nokkrar áhyggjur af því, hvorki fyrir þingmenn í Norðurl. e. né á Austurlandi.