Málefni fatlaðra

82. fundur
Miðvikudaginn 01. febrúar 1995, kl. 14:56:42 (3739)


[14:56]
     Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram að þó að ég léti þess getið að ég væri ekki með beinlínis á borðum hvorki tölurnar um þennan hóp né neinar tillögur þá höfum við afar gott samstarf við Geðhjálp um þessi mál og m.a. í gegnum samstarfssamning sem gerður var við þau. Ég get fullvissað þingmanninn um það að ég mun koma þeim ábendingum sem fram komu við umræðuna um geðfatlaða á framfæri og ég mun tryggja það að þessi mál verði skoðuð og hvort einhverjar tillögur í skýrslunni liggi fyrir sem ástæða sé til að taka upp á borðið aftur.