[14:57]
Guðmundur Hallvarðsson :
Virðulegi forseti. Ég tek undir þau orð sem margir þingmenn hafa látið falla varðandi þessa þáltill. og ég fagna henni. Ég var meðflm. Guðjóns Guðmundssonar alþingismanns á sambærilegri þáltill. á síðasta þingi. Það er alveg rétt eins og hér hefur komið fram í máli manna að lengi hefur verið talað um þetta vandamál í Alþingi og þingheimur almennt mjög sammála því að hrinda þessu máli af stað og vinna að framkvæmd þess að landslýður allur og sjómenn á hafi út í kringum Ísland nái fyrst og fremst Ríkisútvarpinu og í öðru lagi sjónvarpi. Vilji hefur staðið til þess hjá mönnum en því miður hefur orðið minna um framkvæmd.
Ég held að frá því að þessi þáltill. var fyrst flutt árið 1987, eins og fram kemur í greinargerðinni var 1. flm. Stefán Guðmundsson alþingismaður í fararbroddi þeirrar þál., hafa miklar breytingar, framfarir og tækni orðið í sendingum útvarps og sjónvarps. Það kom fram hjá síðasta ræðumanni að nú væri svo komið með marga bæi í hinni dreifðu byggð sem áður höfðu notið útvarps í gegnum sjónvarp að nú yrðu þeir að láta sér lynda að horfa á það sem gerist á Alþingi og þá ná þeir ekki Ríkisútvarpinu á meðan. Ekki verður á allt kosið á meðan ástandið er svo eins og raun ber vitni í hljóðvarpi okkar Íslendinga og Ríkisútvarpið ber varla það heiti að vera útvarp allra landsmanna á meðan ástandið er svo sem raun ber vitni um.
Ég vildi gjarnan vekja athygli á því þar sem ég gat um þá tækni og þróun sem hefur átt sér stað síðan þessi þáltill. var fyrst flutt 1987 þá er það nú svo að a.m.k. við Reykvíkingar og ég held að flestir á suðvesturhorninu geta nú horft á þriðju sjónvarpsstöðina sem er kristilegt sjónvarp og kemur í beinni útsendingu frá Bandaríkjunum. Það þykir ekkert tiltökumál. Það er hópur kristins fólks sem hefur tekið sig saman og ekki þekki ég þá sögu eða veit hvernig á sendingunni stendur en alltént er hún í gegnum gervihnött. Þegar svo hv. alþm. hafa verið að tala úr ræðustól um að það þurfi að reisa mastur hér og þar og útvarpssenda vítt og breitt um landið til þess að þetta megi gerast þar sem ósk manna er um varðandi þau mál sem koma fram í þessari þáltill. get ég ekki annað en hugsað til þessara gagnmerku ágætu kristilegu sjónvarpsstöðvar sem, eins og ég sagði áðan, hefur útsendingar frá einhverri sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum sem nást um allt suðvesturhornið.
Það leiðir auðvitað hugann að því að ég er ansi hræddur um að það hljóti að vera aðrar leiðir til að koma útvarpi Íslendinga til allra landsmanna og jafnframt á miðum með öðrum hætti en hér hefur verið talað um. Erum við ekki að tala bara um eitthvað sem tilheyrir fortíðinni? Getur það verið að tæknimenn Pósts og síma sjái ekki aðrar leiðir en með þessum hefðbundna hætti að leggja annað hvort möstur vítt og breitt og síðan einhverja útvarpssenda með þeim mikla tilkostnaði sem talað er um? Við sjáum líka hvað hefur gerst í þeim ósköpum sem dunið hafa yfir Vestfirðinga ekki fyrir löngu og öll þjóðin tók þátt í þeirri miklu sorg sem þar dundi og þeim ósköpum hvar menn stóðu agndofa yfir. Oftar en ekki var síminn að detta út og útvarp. Maður spyr sjálfan sig: Er það virkilega svo að ekki sé til önnur tækni en sú sem hér hefur komið fram um að það þurfi að reisa möstur og sendistöðvar þegar til þess er litið að hér er kristileg sjónvarpsstöð sem tekur sinn boðskap beint frá Bandaríkjunum á þeirri stundu sem talað mál fer fram þar vestra.
Ég trúi ekki öðru en að til séu lausar rásir í gervihnöttum sem svífa hér yfir sem mundi stytta okkur verulega leið í þessu og eflaust vera miklu öruggari sendiboði til hinna dreifðu byggða en nú er gert með þeim hætti sem nú er. Ég trúi því ekki öðru og trúi því ekki fyrr en ég tek á og sé það á prenti að það sé leið sem ógjörningur er að fara.
Því vildi ég að lokum segja að ég styð heils hugar tillöguna og vona að hún fái skjótan framgang en ég vænti þess líka að það komi fram skýr og skelegg svör frá þeim aðilum hjá Pósti og síma sem gleggsta þekkingu hafa á og eiga nú að fylgjast mjög vel með framförum og tækni nútímans, að það komi skýrt og skeleggt frá þeim hvort hér sé um mjög óraunverulega hluti að ræða þegar ég nefni gervihnattasendingar sjónvarps og síma á landinu.