Embættisfærsla umhverfisráðherra

87. fundur
Mánudaginn 06. febrúar 1995, kl. 16:28:07 (3951)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Þingflokkur Alþfl. hefur farið fram á það við forseta að þar sem tillagan beinist að hæstv. umhvrh. verði farið á annan veg en vant er með tíma til andsvara. Í 44. gr. þingskapa segir svo:

    ,,Forseti getur ákveðið frávik frá þessari málsmeðferð [þ.e. 15 mín. og 8 mín.] ef fyrir liggur rökstudd beiðni þingflokks þar að lútandi. Hver þingflokkur hefur rétt til að bera slíka beiðni fram við forseta einu sinni á hverju þingi.``
    Forseti hefur því ákveðið að verða við þessari beiðni og mun úthluta hæstv. umhvrh. 15 mínútum í fyrri umferð málsins.