[18:23]
Flm. (Árni R. Árnason) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að þakka þeim sem hafa tekið til máls við umræðu um þessa tillögu, en ég frábið mér þann skilning hv. 15. þm. Reykv. að tillagan sé flutt í skyni sýndarmennsku og vænti þess að ef hv. þm. hugsar sig um betur og fær upplýsingar um það hvenær tillagan kom fyrst fram, hvort hún hefur áður fengið umfjöllun í hv. menntmn. og hvar menntastefnumótunin var stödd þegar hún var fyrst flutt, þá komist hv. þm. að þeirri niðurstöðu að hér er málefnalega að staðið eftir því sem kostur var. Hins vegar má deila um hvort flm. hefðu átt að vera fyrr tilbúnir með sína skoðun á málinu. Ég tel hins vegar miklu meira skipta að við hefjumst handa um meiri verkmenntun í skólum okkar heldur en verið hefur og sýnum henni miklu meiri virðingu en hún hefur notið.
Ég tel miklu skipta að við veitum athygli þeirri umræðu sem á sér stað í dag meðal aðila vinnumarkaðarins, bæði launþegasamtaka og vinnuveitenda, að okkur skorti miklu meiri iðnað og til að mynda iðnað úr þeirri afurð sem við höfum mestan kost á, sjávarafurðum, til þess að fá meira fé fyrir störf góðra Íslendinga. En til þess þurfum við að auka við þekkingu okkar í þeirri vinnslu og hætta að selja þær afurðir sem hráefni en stefna að því að selja þær sem fullunnar afurðir tilbúnar til neyslu.