Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Eftir ósk hv. 4. þm. Austurl., sem hann bar fram í gær á þingfundi, raunar tvívegis, er rædd var till. til þál., sem hann er 1. flm. að, um kosningu rannsóknarnefndar til að rannsaka embættisfærslu umhvrh. í svokölluðu veiðistjóramáli, þá vill forseti, sá sem hér stendur, segja eftirfarandi:
Samkvæmt 44. gr. þingskpa er það reglan að flutningsmaður þáltill. hefur við fyrri umræðu 15 mín. ræðutíma tvisvar. Aðrir þimgmenn og ráðherrar 8 mín. tvisvar. Frá þessari reglu eru tvær undantekningar. Annars vegar ef fyrir liggur rökstudd beiðni þingflokks og hins vegar ef tillaga fjallar um tiltekna málaflokka. Ósk eða beiðni um frávik frá þeim ræðutíma sem í greininni stendur þarf að liggja fyrir áður en umræða hefst og ef á hana er fallist þá gildir almenn regla 55. gr. um umræðuna, þ.e. engin tímamörk. Samkvæmt 72. gr. má þó ákveða ræðutíma sérstaklega eða hve lengi umræða má standa með samþykki allra þingflokka, þ.e. semja um umræðuna eins og það hefur verið kallað.
Úrskurður forseta í gær um að ráðherra, umhvrh. í þessu falli, skyldi hafa jafnlangan ræðutíma og flm., þ.e. 15 mín., hefur því ekki fordæmisgildi við túlkun 44. gr. þingskapa eins og hún er nú.
Á hitt ber að líta, eins og sá forseti sem stjórnaði þingfundinum í gær raunar tók fram, að tillagan sem til umræðu var er óvenjuleg. Í greinargerð með henni eru alvarlegar ásakanir í garð ráðherra. Það var því naumast sanngjarnt, þrátt fyrir skýr ákvæði þingskapa, að ráðherrann hefði aðeins 8 mín. til að svara, helming af tíma flutningsmanns. Við þessum aðstæðum var sá forseti sem sat á forsetastóli augljóslega að bregðast.
Í ljósi þessa telur forseti að þetta atriði þingskapanna þurfi að koma til athugunar við endurskoðun þeirra, annaðhvort að forseti hafi almenna heimild við umræðu til að víkja frá tímamörkum til rýmkunar ef sérstaklega stendur á, svo sem í tilvikum sem þessum, eða að ráðherra sem málið varðar hafi jafnan rétt og flm. við fyrri umræðu um þáltill.