Embættisfærsla umhverfisráðherra

88. fundur
Þriðjudaginn 07. febrúar 1995, kl. 14:15:58 (4006)


[14:15]
     Jón Helgason (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Það sem þessi þáltill. fjallar um er að það verði kannað hvort sönn sé sú ásökun sem komið hefur fram á hæstv. umhvrh. að hann hafi ekki staðið rétt að annars ágætri ákvörðun um flutning á embætti veiðistjóra norður á Akureyri en ég hygg að flestir hv. alþm. séu sammála um að sú ákvörðun út af fyrir sig er góð. En það undrar mig að hér skuli koma fram sú skoðun að ekki megi athuga og koma í ljós sannleikur í þessu máli og því hlýt ég að verða fyrir vonbrigðum með þá afstöðu.