[16:07]
Jón Helgason (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Mig langaði að bera fram fyrispurn til hæstv. fjmrh. áður en þessi umræða byrjar ef hæstv. fjmrh. gæti aðeins hlýtt á. Það kom fram í upphafi umræðu um þetta mál að það byggist á breytingu á áfengislögum, eins og til hefur verið vitnað. Síðan lagði hæstv. dómsmrh. fram frv. til breytinga á áfengislögunum í samræmi við það frv. sem hér er til umræðu. Það frv. hefur ekki enn þá verið tekið á dagskrá eða mælt fyrir því.
Ég vil því spyrja hæstv. fjmrh. hver ætlunin sé af hans hálfu með því að halda áfram umræðu um þetta mál meðan hitt frv. hefur ekki verið tekið fyrir. Það er ljóst að það þýðir lítið að afgreiða frv. fjmrh. nema sú breyting nái fram að ganga eða hver eru áform hæstv. fjmrh.? Ætlar hann að reyna að fá þessi frv. afgreidd sem lög þó hæstv. dómsmrh. mæli ekki fyrir sínu frv. sem er forsendan fyrir því að þessi frv. hafi eitthvað að þýða?