Lánasjóður íslenskra námsmanna

89. fundur
Miðvikudaginn 08. febrúar 1995, kl. 15:43:40 (4083)


[15:43]
     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég veit ekki hvort það er einhver allsherjarmisskilningur sem gengur hér á milli okkar. Ég hef ekki haldið því fram að lánþegum hafi fjölgað. Ég er að segja að lánþegum hafi fækkað. Það á ekki að vera ágreiningur á milli okkar þar. En ég er hins vegar að segja að námsmönnum í lánshæfu námi hefur fjölgað. Það er meginmálið.