Tilkynning um dagskrá

90. fundur
Fimmtudaginn 09. febrúar 1995, kl. 10:35:05 (4088)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Samkomulag hefur orðið um það milli þingflokka, sbr. 48. gr. þingskapa, að talsmenn annarra flokka en flokks utanrrh. hafi ræðutíma allt að 30 mínútur í fyrra sinn. Fyrirkomulag umræðunnar verður þá þannig að utanrrh. og talsmenn þingflokka hafa allt að 30 mínútur í fyrra sinn og allt að 15 mínútur í síðara sinn. Aðrir þingmenn og ráðherrar allt að 15 mínútur, tvisvar.
    Gert verður hlé á þessum fundi milli klukkan eitt og tvö.