[16:39]
Björn Bjarnason (andsvar) :
Hæstv. forseti. Í ræðu sinni leitaðist hv. þm., formaður Alþb., við að bera saman hin sérstöku tengsl Alþb. við flokkana í Austur-Evrópu og samskipti sem menn hafa átt við alþjóðlegar stofnanir sem Ísland á aðild að. Þetta er náttúrlega algerlega fráleitt. Eins og fram hefur komið og margsinnis hefur verið sagt voru þessi flokkslegu tengsl við flokkinn í Austur-Þýskalandi m.a. þess eðlis að menn voru sendir þangað til náms á flokkslegum forsendum til að búa sig undir þátttöku í íslenskum stjórnmálum. Þetta er gjörsamlega ósambærilegt við það að fara í kynnisferðir til alþjóðastofnana sem Ísland á aðild að og að taka þátt í fundum þar í boði slíkra stofnana. Þótt hv. þm. hafi undir lok ræðu sinnar dottið í hug orðið samanburðarfræði, sem gengur út á það að komast að þeirri niðurstöðu að aðrir séu kannski ívið verri en kommúnistar og Sovétríkin, þau snerust um það, ræðan var svolítið í þeim dúr að þó þetta væri slæmt þá væri kannski ýmislegt annað sem væri slæmt líka, þá bið ég hann að detta ekki í þá pytti því að það er staðreynd að þessi flokkslegu tengsl voru í pólitískum tilgangi, til þess að hafa pólitísk áhrif og hlutast til um málefni Íslands.