[15:58]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Ég er hér að tala um stefnubreytingu varðandi Djúpveginn. Ég er að tala um það að á næstu fjórum árum fari 438 millj. kr. eða svo í Djúpveginn í staðinn fyrir 56 millj. kr. eins og gert er ráð fyrir í þeirri langtímaáætlun sem lá fyrir fyrir síðustu kosningar. Við erum því að tala um mikla stefnubreytingu. Ég verð líka að segja við hæstv. utanrrh., hann er ekki við, að mér þótti hann bölsýnn á það að hægt yrði að halda áfram því átaki sem hér er efnt til ef það verður samþykkt.
Ég get ekki fallist á að það sé óeðlilega staðið að þessum hugmyndum. Það hefur verið lögð áhersla á að kynna þessar hugmyndir fyrir þingmönnum Vestfirðinga og það er unnið að því og auðvitað verða menn að standa frammi fyrir vali. Það er ekki hægt að nota sömu peningana tvisvar. Ég get nefnt sem dæmi vegna þess að það er talað um Sæbjörgu gömlu, gamla Þór. Það skip, skólaskipið núna, er 43 ára gamalt. Það hefur ekki haffærisskírteini til siglinga að vetrarlagi og getur ekki siglt frá septemberlokum og fram í maí. Önnur aðalvél skipsins er ónýt og það kostar 50--60 millj. kr. að gera við það. Að öðrum kosti yrðum við að kaupa nýtt skólaskip. Við erum að tala um það að reyna að spara með því að nýta Fagranesið sem skólaskip, láta það vera fyrir vestan þann tíma eftir áramótin, um hátíðar og fram í mars þegar þannig viðrar. Það er hægt að nota Fagranesið til að grípa inn í fyrir aðra ferjubáta og það er hægt að nota Fagranesið yfir sumarið til ferðaþjónustu ef á þarf að halda en nota þá fjármuni sem sparast til átaks í samgöngumálum Vestfirðinga og til þess að hefja uppbyggingu Djúpvegarins. Ég trúi ekki öðru en þingmenn beri gæfu til þess að fylgja eftir því vegátaki sem hér er efnt ef sú verður niðurstaðan.
( Gripið fram í: Gilsfjarðarbrúin?) Um Gilsfjarðarbrúna er ekki annað að segja en hún verður boðin út á þessu ári ef ég fæ að ráða.