Ferðaþjónusta

92. fundur
Mánudaginn 13. febrúar 1995, kl. 18:14:32 (4226)


[18:14]
     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Þar sem hæstv. samgrh. minntist á 40 millj. sem hefði verið varið til kynningar á Íslandi erlendis þá hef ég grun um að það séu þær milljónir sem afhentar voru Flugleiðum án nokkurra kvaða um hvernig brúka skyldi. Mér fyndist forvitnilegt ef hæstv. samgrh. gæti gefið okkur einhverjar upplýsingar um það í sínu síðara svari hvernig þessum fjármunum var varið.