Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 23:32:17 (4279)

[23:32]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi beina þeirri spurningu til hæstv. forseta hversu lengi muni eiga að halda áfram í kvöld. Það var rætt um kvöldfund og nú er klukkan að nálgast miðnætti þannig að það væri æskilegt að vita hversu lengi er fyrirhugað að halda áfram eða hvort þessum kvöldfundi sé ekki að verða lokið sem fyrirhugaður var. Ég vildi beina þeirri spurningu til hæstv. forseta hvort það sé ekki mál að fara að hætta þar sem flestir hér inni eiga að mæta á nefndarfundi kl. 8 í fyrramálið.