Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 23:33:44 (4280)



     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Hv. 6. þm. Vestf. hefur spurt forseta um það hvort ástæða væri til að hætta umræðum núna. Forseti vill upplýsa hv. þm. um að á mælendaskrá eru enn sex hv. þm. og forseta þykir eðlilegt að gefa hv. þingmönnum tækifæri til að ljúka ræðum sínum og ræða þetta mál og þess vegna er forseti reiðubúinn til þess að sitja hér svo lengi sem hv. þm. vilja ræða þetta mál. (Gripið fram í.)