Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 23:35:01 (4282)



     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill upplýsa hv. 6. þm. Vestf. um að einmitt í ljósi þess að aðeins sex hv. þingmenn hafa komist að með ræður sínar í þessu máli frá því um miðjan dag þykir forseta það brýn ástæða og réttlætismál að gefa fleiri hv. þm. kost á því að taka þátt í umræðum og samfelldri umræðu. (Gripið fram í.)