Náttúruvernd

96. fundur
Fimmtudaginn 16. febrúar 1995, kl. 13:03:30 (4394)


[13:03]
     Jón Helgason (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram, að ég er að fara á fund í allshn. Ég er að vísu ekki á mælendaskrá, ég er ekki búinn að setja mig þar aftur. Ég óskaði eftir því við lok umræðunnar í fyrrinótt að fá upplýsingar frá hæstv. umhvrh. Hann hafði þá takmarkaðan tíma og gat því ekki farið yfir allt sem um hafði verið spurt. Ég var því að bíða eftir því hvort það mundu koma frekari upplýsingar frá honum nú, sem ekki hefur orðið enn, en ég mun að sjálfsögðu ræða málið út frá því sem hæstv. ráðherra sagði þar ef það mætti verða til þess að skýra eitthvað málin og þá ítreka mínar spurningar eða til þess að hægt væri þá að athuga betur hvort menn gætu þar miðlað svo málum að það væri hægt að fá ásættanlegri niðurstöðu. En ég er því miður nú að fara á nefndarfund.