[18:25]
Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) :
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá efh.- og viðskn. á þskj. 685 um frv. til laga um breytingu á lögum, nr. 7/1936, um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, með síðari breytingum.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn Jón Ögmund Þormóðsson, skrifstofustjóra í viðskrn. Í máli hans kom fram að nokkrar lagfæringar þyrfti að gera á frv. áður en það yrði afgreitt en þær felast eingöngu í umorðun á greinum til að gera þær skýrari en áður var. Nefndin mælir því með samþykkt frv. með þeim breytingartillögum sem eru á þskj. með sama númeri.