Verslunaratvinna

100. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 18:28:02 (4552)


[18:28]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá efh.- og viðskn. á þskj. 684 um frv. til laga um breytingu á lögum, nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, ásamt síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson, skrifstofustjóra í viðskrn. Nefndin mælir með samþykkt frv. með breytingu sem er á þskj. með sama númeri. Undir þetta skrifa allir nefndarmenn í efh.- og viðskn.