Iðnþróunarsjóður

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 17:33:56 (4601)


[17:33]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra rakti nokkuð forsögu þessa frv. og hvers vegna það ber svona seint að hér. Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um það, mér fannst einhvern veginn að hann gleymdi ákveðnum kafla úr því ferli. Við sem fylgdumst með þessu í fjölmiðlum og af viðtölum við ráðherra heyrðum að á einhverju stigi stóð á því að vilji, í það minnsta hluta ríkisstjórnarinnar, hafi verið að taka Iðnþróunarsjóð og nota hann til að styrkja eiginfjárstöðu Landsbankans. Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra, af því hann gerði forsögu þessa frv. svona greinargóð skil, að fræða okkur um þennan þátt málsins einnig.