Iðnþróunarsjóður

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 17:35:09 (4602)


[17:35]
     Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þar sem ég er viðskrh. get ég upplýst að slíkar óskir hafa aldrei komið fram frá Landsbankanum, enda mundi það hafa þýtt það að ef eignareikningur Landsbankans hefði verið stækkaður með einhverjum slíkum hætti þá hefði orðið að auka lausafjárstöðu bankans sem því nemur. Þannig að það mál hefur ekki verið á dagskrá. Hvaða hugmyndir einstakir menn kunna að hafa haft eða hafi haft eða vildu hafa haft vil ég ekkert um segja.