Iðnþróunarsjóður

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 17:35:45 (4603)



[17:35]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra ræddi um hugmyndir einstakra ráðherra. Nú vil ég ekki fullyrða neitt, því það er ekki gott að trúa alltaf öllu sem maður les í blöðunum. En ef ég man rétt þá voru þessir einstöku menn í ríkisstjórninni, hugsanlega í forsæti fyrir ríkisstjórnina. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta hafi komið til tals innan ríkisstjórnarinnar og hvort þetta hafi verið hugmyndir einstakra ráðherra þar.