[17:36]
Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég geti ekki svarað fyrir aðra ráðherra en þann sem hér stendur. Ef aðrir ráðherrar hafa haft einhverjar hugmyndir í þá veru eða einhverja aðra veru þá verður hv. þm. að spyrja þá. Það liggur fyrir að hvorki í iðnrn. né viðskrn. voru uppi hugmyndir um slíkt og ekki heldur af stjórnendum Landsbanka Íslands.