Flugmálaáætlun 1994--1997

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 18:02:44 (4613)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti getur ekkert annað en tekið undir þessi orð. Það er alltaf afar bagalegt þegar mikið er rótað til í dagskrá. Hitt er annað mál að þetta er oft vandamál þegar fer að líða að þinglokum, nefndir verða að hafa aukafundi hvort sem mönnum líkar betur eða verr og ráðherrar eru afar önnum hlaðnir. Þetta er svo sem ekkert nýtt en gott er það ekki og forseti mun ræða þessi mál við hæstv. samforseta sína við fyrsta tækifæri.