[18:03]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ég hygg að við séum öll það gömul í hettunni í sölum Alþingis, hæstv. forseti og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, til að vita að það hefur komið æðioft fyrir á liðnum árum og liðnum þingum að málum sé skákað til á dagskránni. Ég hygg að báðum hv. þm. sé einnig kunnugt að fyrir hefur komið að þingfundi sé slitið, öll mál tekin af dagskrá og annar fundur boðaður þegar í stað með ný mál á dagskrá sem ekki ætti síður að koma á óvart en þó mál séu rædd sem á dagskrá eru. Það er allt til í þessu og hefur verið á liðnum árum og áratugum og hér er eingöngu farið eftir rótgróinni þinghefð. Á hinn bóginn þekki ég það líka að það er jafngömul þinghefð að gera athugasemdir við hæstv. forseta þegar þannig liggur á mönnum.