Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Andsvörum er lokið og nú er ljóst að þessu máli getur ekki lokið áður en fundi verður frestað vegna þingflokksfundar sjálfstæðismanna. Forseti vildi fara þess á leit við hv. þingheim að leyft yrði að tvö mál yrðu tekin fyrir sem ekki ættu að þarfnast mikillar umræðu. Það eru 21. og 22. mál og ef því verður ekki mótmælt hyggst forseti taka fyrir 22. mál.
Forseti vill upplýsa hv. þm. að hér er einungis um að ræða að nýta þær fáu mínútur sem gefast fram að kvöldverðarhléi en eigi að fara að hefjast umræður um fundarstjórn forseta þá er hún leyfð en þá verður ekki af frekari umræðu vegna þess að fundi verður frestað eftir þrjár mínútur.