Flugmálaáætlun 1994--1997

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 21:00:35 (4641)


[21:00]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Já, það er nú auðvelt að koma hér í ræðustól og tala digurbarkalega rétt fyrir kosningar um það hvað menn ætla að gera á næsta kjörtímabili. Ég held að það hefði verið betra fyrir okkur, hv. 5. þm. Norðurl. v., að ganga bara formlega frá því að þetta yrði gert á þessu kjörtímabili.