[23:59]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég veit að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hefur verið í miklum önnum síðustu daga. Þess vegna hefur hann ekki getað lesið þetta frv. og þar af leiðir bar ræða hans hér vott um það að hann hefði ekki kynnt sér efni þess mjög til hlítar. En laun heimsins eru vanþakklæti, það er gamall sannleikur og líka nýr.
Hér leggur ríkisstjórnin fram frv. sem gerir það að verkum að á 10 árum verði greiddir 2 milljarðar úr ríkissjóði til fráveituframkvæmda sveitarfélaga. Hv. þm. kemur hingað og segir: Hvers vegna var þetta ekki meira? Það er rétt að svara honum alveg skorinort um það. Vegna þess að ekki var beðið um meira. Hér er tekin upp sú tillaga sem fulltrúar Sambands ísl. sveitarfélaga féllust á ( SJS: Féllust á?) í þessari fráveitunefnd, já. Í þeirri fráveitunefnd sem ég rakti áðan í minni ræðu og þetta er lagt fram í nánu samráði við Samband ísl. sveitarfélaga og lagt á það allt kapp, m.a. af bæjarstjórn þess sveitarfélags sem hv. þm. hefur lögheimili í, þ.e. Akureyri, þar sem svokallaðar flýtiframkvæmdir í fráveitumálum sem sú bæjarstjórn hefur rætt um að hrinda af stað eru nánast háðar því að þessar greiðslur komi. Ég ítreka það að þetta er gert samkvæmt tillögu Sambands ísl. sveitarfélaga. Það eru engir fjármunir á fjárlögum þessa árs vegna þessa og ástæðan er einföld, ef þingmaðurinn les þetta, þá er það borgað ári á eftir framkvæmdum. Þannig að það yrði ekki fyrr en á næstu fjárlögum sem það yrði ákveðið fyrir næsta ár.
Ég er mjög hissa á undirtektum hv. þm. sem ég hef alltaf talið mjög vinveittan sveitarfélögum. En hér
kemur hann og er með allt á hornum sér, sem sem betur fer eru lítil, hefur eigi að síður allt á hornum sér með þessu frv. Ef hv. þm. vill beita sér gegn því að það verði samþykkt þá verður bara svo að vera. Ástæðan fyrir því að það kom ekki fyrr fram er einfaldlega sú að það var í undirbúningi þangað til í lok janúarmánaðar, það var ekki til fyrr.