[00:20]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er alveg sama hvað hv. þm. telur. Það var ekki hægt að ná niðurstöðunni fyrr. Málið var bara ekki fullunnið fyrr, því miður. Ég er hins vegar hjartanlega sammála honum um að það er miður að málið skuli ekki hafa komið fram fyrr, ég er alveg sammála um það.
Það er auðvitað algerlega út í hött að fara að knýja fram einhverjar yfirlýsingar um það að ef þetta frv. verði ekki samþykkt þá jafngildi það loforði um að ríkisstjórnin ætli að greiða allt að 200 millj. kr. í framkvæmdir á þessu ári. Hvar í ósköpunum á ríkisstjórnin að fá heimild til þess ef það er ekki til í lögum? Ekki er það á fjárlögum. Það liggur alveg ljóst fyrir að það er ekki hægt að líta á það sem loforð. Hins vegar kemur stefna ríkisstjórnarinnar þarna fram.
Bæði hv. þm. og fleiri þingmenn úr hans flokki sem hér hafa talað í kvöld hafa gert því skóna að núv. ríkisstjórn eigi skamma lífdaga fram undan þannig að miðað við það er það algerlega út í hött og án allra raka og án allrar skynsemi að ætla að fara að knýja þessa ríkisstjórn til einhverra loforða vegna einhverrar framtíðar sem hann hefur ekki einu sinni trú á sjálfur. Ef málið er gott þá er ég viss um að málið verður samþykkt á þinginu því að þetta er einfalt mál í sjálfu sér. Ef það er slæmt þá mun það væntanlega liggja og daga uppi eins og mörg önnur mál sem súpa fallegar fjörur.