Gjald af áfengi

101. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 02:02:57 (4709)


[02:02]
     Ingi Björn Albertsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég skil hv. þm. mætavel að það sé auðvelt að falla í þá freistni að trúa rituðu máli og ekki síst á þingskjölum frá ríkisstjórninni. Þess vegna taldi ég mér skylt að koma upp og leiðrétta það sem þar kom fram. Það er ekki rétt og ég vona að það hafi þá komist vel til skila.