[13:23]
Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. frá allshn. á þskj. 724 við frv. til laga um breyting á lögum um málflytjendur. Í ákvæði til bráðabirgða verði nokkrar breytingar, sem taldar eru upp í a-, b- og c-liðum, og síðan eru þær skýringar meðfylgjandi að þetta frv. var flutt óbreytt frá síðasta löggjafarþingi. Við afgreiðslu málsins í allshn. láðist að leggja til breytingar á gildistöku í ákvæðum til bráðabirgða, en þær dagsetningar sem þar eru nefndar eru allar liðnar. Enn fremur er lagt til að gildistöku b-liðar 3. gr., sem gerir ráð fyrir að lögð verði niður sú skipan að úrskurðir stjórnar Lögmannafélagsins sæti kæru til Hæstaréttar, verði frestað til 1. jan. 1996.