Tilkynning um dagskrá

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 14:55:11 (4746)

[14:55]
     Egill Jónsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að vekja athygli á því að landbn. á hér tvö mál til afgreiðslu og það vill svo til að þau eru bæði þingmannamál og að öðru þeirra er m.a. fulltrúi Kvennalistans, sem talaði hér áðan, 1. flm. Þannig að þetta eru ekki stjórnarfrumvörp heldur þingmannamál.