Framhald þingfundar

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 15:01:53 (4752)


[15:01]
     Finnur Ingólfsson :
    Virðulegi forseti. Ég held að það væri skynsamlegt að gera hlé núna á þessum fundi þar til þingflokkar hafa haldið sína fundi og nota tímann fram til kl. 4 til þingflokksfunda og halda síðan fund með formönnum þingflokka og forseta þingsins og sjá til hvort menn geta ekki komist að samkomulagi um það að milli kl. 4 og 5 fengju þingmenn að mæla fyrir þeim málum sem eru á dagskrá.