Framhald þingfundar

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 15:08:13 (4758)


[15:08]
     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Ég er með mál á dagskránni sem ég vildi gjarnan mæla fyrir. Ég tel mikla möguleika á að það mál fái farsælan endi á þingi en til þess að svo verði þarf að mæla fyrir því og koma því í nefnd. Ég vildi þess vegna gjarnan fá að mæla fyrir mínu máli.