Framhald þingfundar

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 15:08:40 (4759)


[15:08]
     Sigbjörn Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Hér hafði verið gert ákveðið samkomulag þannig að fundi lyki um þrjúleytið. Í ljósi þess ákvað ég að boða til þingflokksfundar á þeim tíma þannig að ég held að það sé hyggilegt að ljúka þessari umræðu og slíta fundi og þingflokksformenn og forseti hittist síðar í dag og hugi að framhaldinu hvernig hægt er að koma því fyrir að menn nái að mæla fyrir þeim málum sem ráð hafði verið fyrir gert í dag.