[15:09]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Ég vil koma því á framfæri að ég tel að þannig ástand sé í þinghúsinu að ég hafi ekki áhuga fyrir því að mæla fyrir mínu máli eftir að þessi tími er liðinn og þingflokksfundir að hefjast í tveimur flokkum og þær aðstæður sem hér eru búnar óviðunandi vegna þess að ekki var gert ráð fyrir því að menn gætu tekið til máls á eftir framsöguræðum. Ég hafði þó hugsað mér að sætta mig við það að mæla fyrir þessu máli í trausti þess að andsvör yrðu leyfð og auðvitað í þeirri von að menn mundi eitthvað fylgjast með því sem fram færi. En ég sé ekki að það verði úr þessu og þess vegna óska ég eftir því að forseti sjái til þess að þingmenn sem eiga mál á dagskrá fái tækifæri til þess á næstunni að mæla fyrir þeim, t.d. á morgun.
Ég get ekki séð annað en stjórnarliðar hljóti að sjá að það er lítil sanngirni í því að raða málum upp eins og hér er gert ef framhaldið verður ekki tryggt þannig að þingmenn fái tækifæri til þess að mæla fyrir málum sem hafa beðið mjög lengi. T.d. hefur þetta mál sem ég er að tala um, um stjórn fiskveiða, beðið mjög lengi eftir því að komast að á dagskránni. Og ég verð að segja það alveg eins og er að þó að stuttur tími sé til stefnu þá verða stjórnarliðar að gera sér grein fyrir því að ef þeir sýna ekki einhverja sanngirni í viðskiptum við stjórnarandstöðuna þá geti orðið ansi lítið sem verður afgreitt hér. Án þess að ég sé með neinar hótanir um það þá tel ég að það hljóti að verða býsna erfitt fyrir menn að sitja á sér ef ekki verður hægt að sýna einhverja sanngirni við stjórn þingsins.