Stjórn fiskveiða

104. fundur
Fimmtudaginn 23. febrúar 1995, kl. 18:25:58 (4829)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða hv. þm. vill forseti geta þess að það er nú svo að reynt er að sjá svo til að unnt sé að tala fyrir þeim málum sem fram hafa verið lögð. Víst er það oft erfitt fyrir forseta þingsins hversu seint mál koma fram, en forsetar gera að sjálfsögðu sitt besta til þess að menn fái að mæla fyrir málum sínum.
    Þinghald í dag hefur verið með þeim hætti að farið hefur verið eftir númeraröð í mál þannig að tæplega er hægt að segja að þar hafi verið gert upp á milli hv. þingmanna.