Tekjuskattur og eignarskattur

104. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 01:10:50 (4880)


[01:10]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það eru athyglisverðar upplýsingar að það skuli þurfa að sameina afl verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi til að pína ríkisstjórnina til að leggja fram 3 millj. til að fylgja eftir þessari launamálakönnun. Það eru fróðlegar upplýsingar þannig að þessi næturfundur hefur ekki verið haldinn til einskis, hæstv. forseti.