Tekjuskattur og eignarskattur

104. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 01:28:24 (4887)


[01:28]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir upplýsingarnar um að það sé ekki meiningin að gera skýrslu fyrir 3 millj. um launajafnréttið, en hins vegar er alveg jafnmikilli óvissu háð hvað á að gera. Ýmsar aðgerðir, já, það segir ekki mikið og segir ekki mikið um það hvort það verður einhver raunverulegur árangur í þessum efnum.
    Ég ætla ekki að blanda mér í það hvort hv. þm. Alþfl. sofa eða vaka undir ræðum fyrrv. félmrh. Það eru umræður um fortíðina sem ég ætla ekki að skipta mér af, en heimildirnar sótti ég í upplýsingar sem komu fram í umræðum fyrr í kvöld og ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það.