Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

105. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 16:31:34 (4980)


[16:31]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 726 við frv. til laga um breyting á lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, með síðari breytingum, frá efh.- og viðskn.
    Við umfjöllun um málið fékk nefndin Snorra Olsen, deildarstjóra í fjmrn., á sinn fund. Nefndin mælir með að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir þetta rita allir nefndarmenn.