Refsiákvæði nokkurra skattalaga

105. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 16:38:23 (4983)

[16:38]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. frá efh.- og viðskn. Sú brtt. er ekki stórkostleg, einungis tæknilegt atriði sem felst í því að lög þessi öðlist þegar gildi við samþykki þeirra en í frv. var gert ráð fyrir því að þau tækju gildi 1. jan. sl.