Endurgreiðsla oftekinna skatta og gjalda

105. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 16:39:24 (4984)

[16:39]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda. Nefndin hefur allmikið fjallað um þetta mál og frv. var samið af fjmrn. og flutt af ráðherranum í ljósi þeirrar umræðu sem fór fram í nefndinni. Nefndin gerir þess vegna ekki neinar tillögur um breytingu á frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.